Pages

Wednesday 30 November 2011

smákökur


Uppskriftin er héðan. Systir mín sendi mér link á þessa síðu og ég stóðst ekki mátið! Varð að prufa sjálf, kökurnar eru svo fallegar :). Ég notaði cherry flavour í stað strawberry í bleika deigið.











tardy


ég átti afmæli í september, en afmælisgjöfin frá kæró var bara að koma núna. úff ég get ekki hætt að dást að þessum elskum. keyptir frá solestruck.


Tuesday 29 November 2011

Monday 21 November 2011

brunch





við sprautuðum matarlit í sítrónur, þá urðu þær svona flottar að sjá :)


Friday 18 November 2011

perluhálsmenið

hálsmenið sem ég var byrjuð á hér. það er svoldið síðan það er tilbúið og ég er búin að nota það mjög mikið, er rosalega ánægð með það.





ég litaði á mér hárið um daginn, svona inn á milli fjólublátt. mér finnst fjólublár fallegur litur.



Thursday 17 November 2011

Rökkurhæðir

Móðir mín, Marta Hlín Magnadóttir, ásamt vinkonu sinni Birgittu Elínu Hassel eru að gefa út unglingabókaflokk. Bókaflokkurinn heitir Rökkurhæðir og núna um jólin koma út tvær fyrstu bækurnar, Rústirnar og Óttulundur.

RökkurhæðirRökkurhæðir

Núna eru þær að leita af unglingum til að lesa bækurnar og skrifa smá umsögn um þær.
Auglýsing af facebook síðu Rökkurhæða:

Viltu láta hræða þig?
Við auglýsum eftir unglingum, strák og stelpu, sem þora að lesa Rökkurhæðabækurnar og jafnvel skrifa litla umsögn um þær. Sendu póst á bokabeitan@bokabeitan.is ef þú hefur áhuga. Þar þarf að koma fram eftirfarandi:
- Nafn og aldur
- Hvað þér finnst skemmtilegast að gera?
- Heimasími (svo við getum látið þau heppnu vita)

Svo ef að þið lesendur góðir þekkið einhverja klára unglinga sem hafa gaman af því að lesa, ekki hika við að benda þeim á þetta :)


Tuesday 15 November 2011

cut-out


að aftan:


að framan:


inspired by:

síðasta mynd: The Sartorialist

ég sá þessa mynd og varð alveg ástfangin, stóðst ekki mátið að klippa úr kjólnum mínum. langar helst að gera þetta við fleiri, og kannski skyrtu líka? held það væri flott. það væri líka gaman að prufa þessa útgáfu, frá A pair and a spare.

Monday 14 November 2011

fjöruferð

einn dag í ágúst á vestfjörðum.

109asd

105asd

097asd

110asd

114asd

118asd

124asd

128asd

129asd

137asd

140asd

158asd

ég var alveg ástfangin af hrúðurkörlunum á stólpunum. væri hægt að gera fallegt munstur með því að teikna eftir þeim.

Saturday 12 November 2011

perlurperlurperlur perlur


semi

semi

perlueyrnaskraut eftir semi jewels. uppskrift HÉR

sequinmagazine

perlukragi eftir Merily frá Sequin Magazine

þetta tvennt er næst á diy to do listanum mínum! :)

meira perlu inspiration.









Friday 11 November 2011

sumar



















F1010017





F1000007

nokkrar myndir frá því ég fór til kaupmannahafnar og á hróarskeldu í sumar. o hvað mig langar í sumar strax aftur.